Erlent

Eiginmaðurinn hélt framhjá

Elizabeth Hurley hefur sótt um skilnað við eiginmann sinn til þriggja ára en hann á að hafa haldið fram hjá henni.
Elizabeth Hurley hefur sótt um skilnað við eiginmann sinn til þriggja ára en hann á að hafa haldið fram hjá henni.
Leikkonan Elizabet Hurley hefur sótt um skilnað við eiginmann sinn til þriggja ára, Arun Nayar, sem er sagður hafa haldið framhjá eiginkonu sinni.

Þessi 45 ára gamla breska leikkona sagði á Twitter síðu sinni að hjónakornin hafi slitið samvistum fyrir nokkrum mánuðum síðan.

Breska slúðurpressan segir að Hurley sé þó ekki einmanna þrátt fyrir að hafa slitið samvistum við eiginmann sinn og sótt um skilnað. Blaðið News of the world segist hafa undir höndum myndir af Hurley og krikketleikaranum Shane Werne að kyssast nýlega. Þá eiga þau að hafa eytt nótt saman á hóteli í London í síðustu viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×