Innlent

Fréttaskýring: Mörg úrræði gegn vanlíðan um jólin

Jólaljós Birtan sem stafar af jólaljósunum nær ekki að lýsa upp tilveruna hjá öllum.
Jólaljós Birtan sem stafar af jólaljósunum nær ekki að lýsa upp tilveruna hjá öllum.
Hvaða úrræði eru í boði fyrir þá sem glíma við andleg eða tilfinningaleg vandamál um jólin?

Þrátt fyrir að jólin séu flestum gleðitími eru engu að síður fjölmargir sem eiga um sárt að binda og upplifa mikla vanlíðan yfir hátíðarnar.

Mörg úrræði bjóðast hins vegar þeim sem vilja leita hjálpar eða stuðnings, til dæmis leita margir til kirkjunnar eða Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, sem rekinn er í samstarfi við Landlækni, geðsvið Landspítalans og Neyðarlínuna. Þar eru sjálfboðaliðar til reiðu allan sólarhringinn til að hlusta og leiðbeina fólki varðandi frekari úrræði.

Karen H. Theodórsdóttir, verkefnisstjóri Hjálparsímans, segir í samtali við Fréttablaðið að mikið annríki hafi verið hjá þeim í allt haust.

„Við finnum samt mestu aukninguna á símtölum til okkar strax eftir jól. Það er erfitt að ráða í hvað það er nákvæmlega sem veldur því en maður getur þó ímyndað sér að þegar jólin skella á eftir annríkið í undirbúningnum komi upp erfiðar tilfinningar hjá mörgum.“

Karen segir að símtölin séu af margvíslegum toga, en margir glími við þunglyndi og depurð auk þess sem fjárhagsvandræði hafi verið áberandi.

„Bara það að hlusta hefur oft mikið að segja því í mörgum tilfellum hefur fólk enga til að tala við eða treystir sér ekki til að tala við neinn sem það þekkir. Því vill það jafnvel frekar tala við ókunnuga. Það getur hjálpað mjög mikið og er líka oft fyrsta skrefið til að leita sér frekari hjálpar.“

Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju, segir fólk sækja mikið til kirkjunnar, sérstaklega síðustu vikuna fyrir jól. Ástæður eru margvíslegar þar sem leitað er eftir matar- og peningaaðstoð auk þess sem margir leita aðstoðar vegna andlegrar vanlíðunar.

„Það er margt sem kemur upp í huga fólks á þessum árstíma, til dæmis gamlar sorgir, söknuður, hjónaskilnaðir og fleira,“ segir Þórhallur.

„Það er bæði hringt til að spyrja og spjalla en svo er líka þónokkuð um að fólk komi í kirkjuna þar sem það er ekkert endilega að koma til að ræða við einhvern heldur vill það kannski kveikja á bænakerti og eiga rólega stund.“

Þórhallur bætir því við að kirkjan sé öllum opin og prestar svari í síma allan sólarhringinn.

thorgils@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×