Innlent

Innbrot á þremur stöðum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Brotist var inn á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Brotist var inn í fyrirtæki á Smiðjuvegi um miðja nótt, en ekki er sjáanlegt að neinu hafi verið stolið öðru en útvarpstæki. Lögreglan segir að þjófavarnarkerfi hafi farið í gang og það virðist hafa fælt þjófana í burtu.

Þá var brotist inn í söluturn í Jafnarseli og skiptimynt tekin úr sjóðsvél, en ekki er vitað hversu mikill peningur það var. Loks var brotist inn í Sandholtsbakari á Laugavegi nú undir morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×