Innlent

Í haldi grunaður um að ofsækja kúbverska fjölskyldu

Einn maður er í haldi lögreglu, grunaður um að hafa ofsótt fjölskyldu af kúbverskum uppruna í Reykjavík, með þeim afleiðingum að fjölskyldufaðirinn og eldri sonur hans, 17 ára, flúðu land í gær, í lögreglufylgd.

Fjölskyldan hefur búið hér í um það bil áratug og er fjölskyldufaðirinn sjúkraþjálfari og sonurinn er virkur í íþróttalífinu.

Fordómarnir eru raktir til þess að sonurinn átti vingott við skólasystur sína, sem fór fyrir brjóstið á mönnum með kynþáttafordóma. Þeir brutu rúður og útihurð á heimili fólksins um helgina auk þess sem fjölskyldunni hefur verið hótað með ýmsu móti.

Maðurinn, sem nú er í haldi lögreglu, var handtekinn í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×