Nammibar freistar barna á leið á æfingar 15. nóvember 2010 06:15 Forvarnarteymið Gróska í Grafarvogi er óánægt með staðsetningu nammibarsins í Egilshöll. fréttablaðið/anton
Forvarnarteymið Gróska í Grafarvogi ætlar að senda frá sér kvörtunarbréf til borgaryfirvalda, Sambíóanna og Egilshallar vegna nammibars í nýja Egilshallarbíóinu. Sameiginlegur inngangur er fyrir þá sem ætla í bíó og þá sem stunda íþróttir í höllinni. Nammibarinn er á fyrstu hæðinni og allir geta notað hann, hvort sem þeir ætla í bíó eða ekki. Þetta telur forvarnarteymið ekki vera við hæfi, enda margir krakkar sem ganga um þetta svæði og líta nammibarinn girndaraugum á leið sinni á og af æfingum. „Allir sem koma inn í Egilshöll, hvort sem þeir eru að fara í bíó eða að stunda íþróttir, ganga beint inn í sælgætisbarinn, popplyktina og allt sem þessu fylgir. Það er algjörlega fráleitt að setja þetta svona upp,“ segir Hera Hallbera Björnsdóttir frístundaráðgjafi. „Þetta er íþróttamannvirki og þarna eru börn að koma á íþróttaæfingar. Þarna er líka frístundaheimili fyrir fötluð börn og þessir aðilar þurfa að fara þarna í gegn. Við erum búin að heyra óánægjuraddir vegna þessa. Foreldrar eru í vandræðum með að ná börnunum sínum þarna í gegn,“ segir hún. Forvarnarteymið vill helst að nammibarinn verði fluttur upp á aðra hæð, þar sem bíóið er, rétt eins og raunin er í Smárabíói. „Við erum hins vegar mjög ánægð með bíóið. Það er bara fyrirkomulagið á sjoppunni sem við erum ósátt við,“ segir Hera.- fb
Mest lesið Sigurði Inga heitt í hamsi þegar hann flutti eldræðu um útlendinga Innlent „Staðan er bara sú að það verður slys hérna“ Innlent Tíu mánaða strákur fær byltingarkennt lyf fyrstur Íslendinga Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Amma lýsir blóðugum niðurgangi og örvæntingu foreldra Innlent Telur „verulegar líkur“ á að sýknu Alberts verði snúið Innlent Afstaða ríkisins hleypi illu blóði og hörku í viðræðurnar Innlent Rétt meðhöndlun hakksins hefði komið í veg fyrir veikindi Innlent Enginn í steininn fyrir heiðursofbeldi Innlent Veröldin hrundi þegar sonurinn greindist Innlent Fleiri fréttir Sigurði Inga heitt í hamsi þegar hann flutti eldræðu um útlendinga „Staðan er bara sú að það verður slys hérna“ Afstaða ríkisins hleypi illu blóði og hörku í viðræðurnar Framboðslisti Ábyrgrar framtíðar í Reykjavík norður Fagnar 400 nýjum störfum við Hvammsvirkjun Tíu mánaða strákur fær byltingarkennt lyf fyrstur Íslendinga Þau verða fulltrúar Íslands á COP29 í Aserbaídsjan Veröldin hrundi þegar sonurinn greindist Enginn í steininn fyrir heiðursofbeldi Amma lýsir blóðugum niðurgangi og örvæntingu foreldra Verkfall í MR samþykkt í annarri tilraun Mörg börn sem beita ofbeldi hafa orðið fyrir því sjálf Ríkið telur ólöglega boðað til verkfalls lækna Þverárfjallsvegur lokaður vegna eldsvoða í bíl Telur „verulegar líkur“ á að sýknu Alberts verði snúið Íslendingar þurfa ekki vegabréfsáritun til Kína næsta árið Steinþór hafi verið að berjast fyrir lífi sínu Dómi í máli Alberts áfrýjað „Sjáum fram á að geta rekið sveitarfélagið eitthvað fram eftir næsta ári“ Borgin lúffar fyrir aðdáendum áramótabrenna Rétt meðhöndlun hakksins hefði komið í veg fyrir veikindi Áfram í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á andláti móður hans Hörður Ellert lætur reyna á dóm fyrir að nauðga stjúpdóttur sinni Grindavík á barmi gjaldþrots og læknar á leið í verkfall Vill vita hvort RÚV hafi einhvern tíma beðist afsökunar Segist aldrei geta litið Sigurð Inga sömu augum Þrjú framboð fengu aðfinnslur frá kjörstjórn Uppruni smitsins var hakk frá Kjarnafæði Hætta á að Grindavík fari í greiðsluþrot Fólkið sem stýrir kosningavélum flokkanna Sjá meira