Innlent

Fullur á Hellisheiðinni

Það er vont a drekka undir stýri, en það er vonlaust að aka Hellisheiðina drukkinn.
Það er vont a drekka undir stýri, en það er vonlaust að aka Hellisheiðina drukkinn.

Einn ökumaður ók út af á Hellisheiðinni þar sem er hálka og snjór. Aðstæður virðast þó ekki hafa ollið slysinu því að sögn lögreglunnar á Selfossi reyndist maðurinn vera grunaður um að aka ölvaður.

Hann var því færður á lögreglustöðina þar sem blóðprufa var tekin af honum.

Nóttin var að öðru leytinu til róleg í umdæmi Selfoss.

Lögreglan segir nokkuð um rjúpnaskyttur á heiðunum í umdæmunum en veiðin virðist hafa gengið vandræðalaust fyrir sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×