Erlent

Beðið eftir heimsendi við franska smábæinn Bugarach

Allt er á öðrum endanum í franska smábænum Bugarach í suðurhluta landsins sem fyllst hefur af nýaldarsinnum undanfarna daga.

Íbúar bæjarins eru innan við 200 talsins en nýaldarsinnar og aðrir ferðamenn hafa margfaldað fjöldann. Bæjarstjórinn hótar því að kalla herinn til.

Ástæða þessa alls er að nýaldarsinnar trúa því að geimverur haldi til í fjalli við bæinn og bíði þess að heimsendir verði árið 2010. Þeir sem komnir eru til Bugarach telja að þeir geti fengið far með geimverunum frá jörðinni þegar heimsendirinn skellur á.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×