Erlent

Byssumenn rændu pósthús í Osló

Frá Osló.
Frá Osló.

Grímuklæddir byssumenn rændu pósthús í Osló í morgun. Norskir miðlar segja að mörgum skotum hafi verið hleypt af inni í pósthúsinu en sjö manns voru í afgreiðslunni þegar mennirnir tveir létu til skarar skríða.

Enginn slasaðist í kúlnahríðinni og ekki er ljóst hvort ræningjarnir hafi náð í einhverja peninga. Ræningjarnir forðuðu sér í bíl áður en lögreglan kom og skömmu síðar fannst bíllinn brunninn til kaldra kola skammt frá. Mannanna er nú leitað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×