Innlent

Jón Gnarr óskar gleðilegra jóla sem Svarthöfði

Skjáskot af jólakveðju borgarstjóra
Skjáskot af jólakveðju borgarstjóra
Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, hefur látið inn jólakveðju á Facebook. Þar óskar hann Íslendingum gleðilegra og kærleiksríkra jóla.

Það sem er kannski eftirtektarvert við þessa kveðju hans er að borgarstjórinn er í líki Svarthöfða, sem er karakter úr Star Wars.

„Þetta er jólakveðja. Kæru vinir, ég óska þér, fjölskyldu þinni, vinum og nágrönnum gleðilegra og kærleiksríkra jóla. Ég vona að þessi tími verði þér yndislegur. Gleðileg jól," segir Jón Gnarr.

Hægt er að horfa á myndbandið með því að smella hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×