Erlent

Svíar hafa gefið út nýja handtökuskipun á Assange

Óli Tynes skrifar
Julian Assagne: Ný handtökuskipun frá Svíþjóð.
Julian Assagne: Ný handtökuskipun frá Svíþjóð.

Yfirvöld í Svíþjóð hafa gefið út nýja handtökuskipun á hendur Julian Assange, stofnanda WikiLeaks vegna ákæru um nauðgun og kynferðislegt ofbeldi. Assange er talinn vera í Bretlandi og breska lögreglan bað sænsk yfirvöld um að laga formgalla sem talinn var vera á fyrri ákærunni.

Með þessa nýju handtökuskipun að vopni er talið að WikiLeaks forsprakkinn verði handtekinn þegar til hans næst. Assange heldur fram sakleysi sínu og segir að málið sé til þess eins gert að sverta mannorð sitt og taka sig úr úmferð til að stöðva frekari leka.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×