Innlent

Kona á fimmtugsaldri ræktaði kannabis í raðhúsi í Garðabæ

Mynd úr kannabisverksmiðju. 72 plöntur fundust í bílskúr konunnar í gær.
Mynd úr kannabisverksmiðju. 72 plöntur fundust í bílskúr konunnar í gær.

Kona á fimmtugsaldri var handtekin í gær þegar lögreglan stöðvaði kannabisræktun í bílskúrnum hennar. Konan býr í raðhúsi í Garðabænum. 72 plöntur fundust í bílskúr konunnar sem játaði sinn þátt í málinu. Hún hefur ekki komið við sögu lögreglunnar áður.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að aðgerð lögreglunnar sé hluti af átaki í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna. Þeir sem upplýsingar hafi um fíkniefnamál geti hringt nafnlaust í síma 800-5005.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×