Innlent

Segir baneitraða arma kolkrabbans leynast víða

Árni Þór Sigurðsson, starfandi þingflokksformaður VG.
Árni Þór Sigurðsson, starfandi þingflokksformaður VG. Mynd/Pjetur
„Baneitraðir armar kolkrabbans eru enn víða í samfélaginu. Látum þá ekki eitra meira og ná yfirhöndinni á ný. Við vitum hvaðan þeim er stjórnað," sagði Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, í umræðum á flokksráðsfundi VG í kvöld. Fram kom í máli margra fundarmanna að brýnt væri að halda Sjálfstæðisflokknum frá völdum.

Þá var lögð rík áhersla á að núverandi ríkisstjórnin starfi áfram. Þeir sem tóku til máls lögðu mikla áherslu á að ekki væri ágreiningur innan Vinstri grænna um hugsjónir og Evrópusambandið sem slíkt. Þess í stað væri tekist á um leiðir og form.

Fjölmargir hafa tekið til máls á fundinum en almennum stjórnmálaumræðum lýkur klukkan 22:30 í kvöld. Fundinum verður slitið á hádegi á morgun eftir afgreiðslu ályktana.


Tengdar fréttir

Steingrímur: Nýtur forystan stuðnings?

„Þetta snýst um það að koma Íslandi aftur á fæturnar. Við þurfum samstöðu til þess. Það verður erfitt að standa í þessu ef við erum eitthvað hölt því aðstæðurnar eru nú nógu krefjandi án þess. Við þurfum auðvitað að vita - forysta flokksins, þingflokkur og forystusveit - höfum við stuðning og umboð frá flokknum og þessari stofnun til að halda þessari baráttu áfram. Við skulum bara fá það á hreint,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, þegar hann ávarpaði flokksráðs Vinstri grænna í dag.

Tekist á um tvær tillögur

Sautján atkvæðabærir flokksráðsmenn Vinstri grænna leggja til á flokksráðsfundi sem hófst síðdegis, að aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið verði slitið nú þegar. Í annarri ályktun sem fleiri atkvæðabærir flokksmenn flytja, er lýst yfir stuðningi við ríkisstjórnina og þar með að viðræðurnar haldi áfram.

Tekist á um Evrópusambandið hjá vinstri grænum

Búast má við að hart verði tekist á um Evrópusambandsmálin á flokksráðsfundi Vinstri grænna sem hefst í dag. Formaður flokksins reiknar með hreinskiptum skoðanaskiptum, en segir engan vafa á því hver stefna flokksins sé í evrópumálum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×