Erlent

Konungur piparsveinanna genginn út

Það eru ekki nema 60 ár á milli Hefners og Crystal Harris.
Það eru ekki nema 60 ár á milli Hefners og Crystal Harris.

Konungur piparsveinanna og stofnandi Playboy tímaritsins, Hugh Hefner, trúlofaði sig á Jóladag. Hin heppna heitir Crystal Harris og er að sjálfsögðu fyrrverandi Playboy-módel, nánar tiltekið desemberstúlka 2009.

Hefner, sem er 84 ára gamall, tilkynnti um trúlofun sína á samskiptavefnum Twitter sama kvöld. Þar lýsti hann því þegar Crystal, sem er 24 ára gömul, brast í grát þegar bónorðið var borið upp.

Hefner er sennilega alræmdasti piparsveinn veraldar og gerir út á þá ímynd í sjónvarpi og tímaritum.

Hann hefur hingað til ekki átt færri en fimm kærustur í einu en þær hlutu heimsfrægð þegar þær fengu sinn eigin veruleikaþátt sem hefur notið velgengni í bandarísku sjónvarpi.

Hefner hefur tvisvar áður verið giftur. Hann skildi við seinni konuna sína, Kimberley Conrad, fyrr á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×