Innlent

Hundur varaði við innbrotsþjófum

Brotist var inn í íbúðarhúsnæði á Völlunum í Hafnarfirði seint í nótt. Íbúar hússins, fjölskyldufólk, var sofandi meðan mennirnir fóru ránshendi um anddyri íbúðarinnar.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Hafnarfirði er ekki ljóst hvað þjófarnir voru margir.

Hundur á heimilinu lét ófriðlega og við það vöknuðu íbúar hússins. Þjófarnir voru þá á bak og burt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×