Óljóst hver leysir af í fæðingarorlofi 26. nóvember 2010 06:30 Katrín Jakobsdóttir Samflokksmennirnir vildu fá að vita hvernig hún hefði fundið tíma til að verða barnshafandi.Fréttablaðið/Valli „
Ég mun nýta mér fæðingarorlofsréttinn. Það er mikilvægara en flest annað,“ segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, sem er með barni og á von á sér í maí. Katrín greindi þingflokki Vinstri grænna frá tíðindunum á miðvikudag. „Þau samglöddust en ég held að fólk sé aðallega hissa. Ég hef verið spurð hvernig nákvæmlega ég fékk tíma í þetta mál,“ segir Katrín, sem kveður málið snúast um forgangsröðun. „Maður finnur tíma í sumt,“ bendir hún á. Óljóst er hver leysir Katrínu af í menntamálaráðuneytinu þá sex mánuði sem hún væntanlega verður frá störfum á næsta ári. Aðeins einn ráðherra hefur fram til þessa tekið sér fæðingarorlof. Árni Mathiesen, þáverandi sjávarútvegsráðherra, tók fimm vikna feðraorlof sumarið 2001. Árni var þó í 25 prósenta starfi í orlofinu. Ekki var kallaður til nýr maður í hans stað. Katrín segist ekki vita hvernig frá málum verði gengið. „Ég reikna með því að þetta verði rætt þegar nær dregur. Það skýrist einhvern tíma eftir jólin ef allt gengur að óskum,“ segir Katrín, sem kveður komandi barnsburð ekki hafa verið skipulagðan fyrir fram. „Við hjónin plönum ekkert fram í tímann,“ svarar menntamálaráðherra. Eiginmaður Katrínar er Gunnar Örn Sigvaldason. Þau eiga tvo syni. - gar
Mest lesið Um átta þúsund norður-kóreskir hermenn á landamærunum Erlent Horfði á lík fljóta fram hjá Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Dómur fyrir að nauðga fermingarstúlkum staðfestur Innlent Stefna ríkinu vegna framgöngu lögreglu Innlent Steinþór „svo skelfdur eða forviða“ að hann gat ekki gætt sín Innlent Sigurður handtekinn í stærsta kristal-amfetamínmáli sögunnar Innlent Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur við Húnaver Innlent Matráður segir upp á Mánagarði Innlent „Tifandi tímasprengjur“ á leið út í samfélagið Innlent Fleiri fréttir Stefna ríkinu vegna framgöngu lögreglu Flokkshollusta á undanhaldi Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur við Húnaver Mikið vinnuálag til að ná launum upp sem læknir Kristrún hefur beðið Dag afsökunar Steinþór „svo skelfdur eða forviða“ að hann gat ekki gætt sín Tæpur helmingur grunnskóla hefur bannað síma Læknar í verkfall, ellefu framboð og hrekkjavaka í Vesturbæ Máttu ekki selja eldaðan mat Sigurður handtekinn í stærsta kristal-amfetamínmáli sögunnar Sigurjón leiðir í Norðausturkjördæmi „Tifandi tímasprengjur“ á leið út í samfélagið Læknar á leið í verkfall Guðmundur Ingi leiðir og skrifstofustjórinn í öðru Dómur fyrir að nauðga fermingarstúlkum staðfestur Viðsnúningur í manndrápsmáli í Landsrétti Formaður Lýðræðisflokksins sagður misbeita samsæriskenningu „Pabbi minn hefði örugglega orðið reiður“ Fékk slá í höfuðið og málið fer fyrir Hæstarétt Borgarfulltrúi skipar annað sætið í kjördæmi formannsins Risastór ákvörðun íbúa í Þorlákshöfn handan við hornið Hvetja Ísland til að draga enn frekar úr losun Stórt skref stigið í átt að fullgildri aðild Færeyja, Álandseyja og Grænlands Framboðslisti Flokks fólksins í Suðurkjördæmi birtur Á ekki von á að þeim fjölgi sem þurfi innlögn vegna E.coli Fækka áramótabrennum í Reykjavík um fjórar Þau skipa framboðslista Pírata í kosningunum Bein útsending: Vítt og breitt um almannavarnamál „Þegar þú liggur yfir þessu dag og nótt þá byrjar þú að þekkja þá“ Máttu ekki hvetja hlunnfarið starfsfólk til að hætta Sjá meira