Erlent

Átta manns týndu lífi

Átta manns létu lífið er smárúta sprakk nærri herbúðum NATO í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Átta manns létu lífið er smárúta sprakk nærri herbúðum NATO í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

Átta manns létu lífið er smárúta sprakk nærri herbúðum NATO í suður Afganistan í gær; sex menn úr sveitum NATO létust auk tveggja afganskara hermanna.

Yfirvöld í Afganistan segja árásina hafa átt sér stað í Zhari-héraði þar sem fjöldi bandarískra hermanna dvelur.

Talsmaður talibana segir þá bera ábyrgð á árásinni og segir hana vera hefndaraðgerð vegna fjölda árása sem NATO hefur gert á sveitir talibana undanfarna mánuði. - sm




Fleiri fréttir

Sjá meira


×