Lífið

Fólkið í kjallaranum á fjalirnar í haust

Ilmur Kristjánsdóttir fer með aðalhlutverkið í leikritinu Fólkið í kjallaranum í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur.fréttablaðið/anton
Ilmur Kristjánsdóttir fer með aðalhlutverkið í leikritinu Fólkið í kjallaranum í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur.fréttablaðið/anton
Leikritið Fólkið í kjallaranum, sem er byggt á vinsælli skáldsögu Auðar Jónsdóttur, verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu í byrjun október.

„Ég er einn af þeim sem hreifst af bókinni eins og svo margir aðrir,“ segir Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri, sem hlakkar til að sjá sýninguna. „Þetta er frábær leikgerð og með svona sterkum leikhópi getur maður ekki annað en iðað í skinninu að sjá þetta fara á svið.“

Aðalsöguhetja verksins, Klara, verður leikin af Ilmi Kristjánsdóttir. Með önnur hlutverk fara Guðjón Davíð Karlsson, Jóhann Sigurðsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Hallgrímur Ólafsson, Birgitta Birgisdóttir og Kristín Þóra Haraldsdóttir. Leikstjóri verður Kristín Eysteinsdóttir og leikgerðina annast Ólafur Egill Egilsson.

Bókin Fólkið í kjallaranum kom út árið 2004. Hún hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Bókin hefur selst í um þrettán þúsund eintökum hérlendis og verið þýdd á fjölda tungumála. Fólkið í kjallaranum fjallar um kvöldstund í lífi ungs pars sem býr í Hlíðunum. Þetta er ljúfsár saga en um leið uppgjör við ‘68 kynslóðina og venjubundnar hugmyndir um lífið og tilveruna.

Nýtt leikár Borgarleikhússins verður kynnt í lok ágúst og bíða margir spenntir eftir komandi vetri. „Þetta verður fjölbreytt og kraftmikið en á sömu línu og verið hefur. Það ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi,“ segir Magnús Geir. -fb





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.