Lífið

For­setar mættu á til­finninga­ríka stund með Grind­víkingum

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Halla Tómasdóttir forseti Íslands lét sig ekki vanta og heilsaði upp á gesti. Hún er hér með Eiríki Stefáni Ásgeirssyni yfirmanni íþróttadeildar Stöðvar 2.
Halla Tómasdóttir forseti Íslands lét sig ekki vanta og heilsaði upp á gesti. Hún er hér með Eiríki Stefáni Ásgeirssyni yfirmanni íþróttadeildar Stöðvar 2. Vísir/Hulda Margrét

Það voru miklar tilfinningar í gær í Smárabíó þegar fyrstu tveir þættirnir af heimildaþáttaröðinni Grindavík voru forsýndir. Fyrsti þáttur verður sýndur á Stöð 2 Sport sunnudaginn 29. desember en þættirnir eru eftir Garðar Örn Arnarson og Sigurð Má Davíðsson, þeim sömu og gerðu Edduverðlaunaþáttaraðirnar Víkingur: Fullkominn endir og Jón Arnór.

Í þáttunum er íbúum Grindavíkur fylgt eftir í heilt ár eftir að hörmulegar náttúruhamfarir leiða til þess að bæjarbúum er gert að flýja heimili sín. Körfuboltalið Grindavíkur varð að sameiningartákni bæjarins og leikir liðsins um leið að samverustund fyrir Grindvíkinga.

Stiklu þáttanna má sjá að neðan.

Þættirnir taka á upplifun Grindvíkinga a þessu erfiða ári i gegnum körfuboltalið bæjarins. Grindavík er ekki eingöngu íþróttaþættir, heldur þættir um fólk sem þarf að takast á við þá erfiðu aðstæður að verða flóttamaður í eigin landi og meinað að leita aftur til sinna uppeldisstöðva.

Tilfinningarnar voru miklar þegar Grindvíkingar, aðstandendur og framleiðendur þáttanna komu saman í Smárabíó í gær og sáu afrakstur þeirrar gífurlegu vinnu sem lögð var í þættina og tár á hvarmi víða, enda fólk að rifja upp erfiða tíma. 

Eiríkur Stefán Ásgeirsson forstöðumaður Stöðvar 2 Sports, Garðar Örn Arnarson leikstjóri og Ingibergur Jónasson formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur ávörpuðu gesti fyrir sýningu. Meðal þeirra sem mættu voru Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti.

Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti Íslands og Eliza Reid fyrrverandi forsetafrú.Vísir/Hulda Margrét
Eiríkur Ásgeir Stefánsson hélt ræðu.Vísir/Hulda Margrét

Sigurður Már Davíðsson gerði þættina með Garðari. Vísir/Hulda Margrét

Garðar Örn Arnarson leikstjóri ávarpaði salinn.Vísir/Hulda Margrét

Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur afhenti aðstandendum þáttanna og körfuknattleiksdeild Grindavíkur viðurkenningu að sýningu lokinni.Vísir/Hulda Margrét

Aðstandendur þáttanna.Vísir/Hulda Margrét

Katrín Ösp Eyberg og Ólafur Ólafsson fyrirliði Grindavíkur.Vísir/Hulda Margrét

Fjóla Sigurðardóttir og Ingibergur Þór Jónasson með syni sínum og dóttur.Vísir/Hulda Margrét

Jón Halldór Eðvaldsson, Nablinn og Egill Birgisson.Vísir/Hulda Margrét

Bryndís Gunnlaugsdóttir aðstoðarþjálfari kvennaliðs Grindavíkur.Vísir/Hulda Margrét

Vilhjálmur Árnason þingmaður og Grindvíkingur í góðum félagsskap.Vísir/Hulda Margrét

Valur Orri, Kristófer Breki og Daniel Mortensen leikmenn Grindavíkur.Vísir/Hulda Margrét

Sigurður Már Davíðsson og fjölskylda.Vísir/Hulda Margrét

Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur og Hrafnhildur Rósa Kristjánsdóttir.Vísir/Hulda Margrét

Halla Tómasdóttir forseti Íslands mætti með eiginmanninn Björn Skúlason og son sinn Tómas Bjart Björnsson.Vísir/Hulda Margrét

Feðgarnir Jón Gautur Hannesson og Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ.Vísir/Hulda Margrét

Sif Rós Ragnarsdóttir, Jóhann Þór Ólafsson og foreldrar Jóhanns.Vísir/Hulda Margrét

Vinahópurinn Vin8, Hinrik Albertsson, Brynjar Guðlaugsson, Ásgeir Elvar Garðarson, Garðar Örn Arnarson,Teitur Ólafur Albertsson, Viktor Guðnason, Magnús Guðmundsson og Björn Geir Másson.Vísir/Hulda Margrét

Hulda Björk Ólafsdóttir fyrirliði kvennaliðs Grindavíkur mætti með fjölskyldunni.Vísir/Hulda Margrét

Hulda Jóhannsdóttir og Páll Valur Björnsson.Vísir/Hulda Margrét

Páll Þorbjörnsson og Jenný Rut Guðjónsdóttir með syni sínum. Vísir/Hulda Margrét

Egill og Anna Guðmundsdóttir.Vísir/Hulda Margrét

Sævar Jónsson og Her­dís Dröfn Fjeld­sted.Vísir/Hulda Margrét

Garðar Örn Arnarson með sínum allra bestu dóttur sinni Emblu Marín Garðarsdóttur og eiginkonu sinni Eydísi Ásu Þórðardóttur.Vísir/Hulda Margrét

Didda Hólmgrímsdóttir og dóttir hennar Lísbet Elíasdóttir.Vísir/Hulda Margrét

Jóhann Árni Ólafsson með fjölskyldu.Vísir/Hulda Margrét

Erna Björnsdóttir og Sævar Örn Kristjánsson.Vísir/Hulda Margrét

Tengdar fréttir

Frumsýning á Vísi: „Er ég að fara að missa allt?“

„Íþróttir skipta okkur ótrúlegu máli. Þetta er eitthvað sem við sækjum okkar identity í og við erum mjög stolt af því að vera íþróttabær,“ segir Bryndís Gunnlaugsdóttir aðstoðarþjálfari kvennaliðs Grindavíkur í fyrstu stiklunni úr heimildarþáttunum Grindavík eftir Garðar Örn Arnarson og Sigurð Má Davíðsson, þeim sömu og gerðu Edduverðlaunaþáttaraðirnar Víkingur: Fullkominn endir og Jón Arnór.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.