Erlent

Laus úr haldi sjóræningja

Bresku hjónin Paul og Rachel Chandler eru laus úr haldi sjóræningjanna.Fréttablaðið/AP
Bresku hjónin Paul og Rachel Chandler eru laus úr haldi sjóræningjanna.Fréttablaðið/AP
Breskum hjónum sem voru handsömuð af sómalískum sjóræningjum er þau sigldu á snekkju sinni frá Seychelles-eyjum í Indlandshafi fyrir einu ári hefur verið sleppt úr haldi.

„Við erum ánægð með að vera á lífi og ánægð með að vera hérna,“ sögðu hjónin er þau voru komin heil á húfi til Sómalíu. „Við getum ekki beðið eftir að hitta fjölskylduna okkar.“ Ástæðan fyrir því að þau Paul og Rachel Chandler voru svona lengi í haldi var hið gríðarháa lausnargjald, sem hljóðaði fyrst upp á um 800 milljónir króna. Þau eru ellilífeyrisþegar en áttu erfitt með að sannfæra sjóræningjana um það.- fb



Fleiri fréttir

Sjá meira


×