Innlent

Ólafur sofandi í öndunarvél

Ólafur Þórðarson
Ólafur Þórðarson
Ólafur Þórðarson tónlistarmaður liggur enn alvarlega slasaður á sjúkrahúsi eftir að sonur hans veitti honum alvarlega áverka á sunnudag. Að sögn læknis á Landspítalanum í gærkvöldi er líðan Ólafs óbreytt frá því á sunnudag. Honum er enn haldið sofandi í öndunarvél.

Sonur Ólafs hefur sem kunnugt er játað árásina á sig og situr nú í tveggja vikna gæsluvarðhaldi sem hann var á mánudag úrskurðaður til að sæta.- gar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×