Erlent

Skotárás á skólanefndarfundi í Flórída

Opinn fundur hjá skólanefnd í Panama borg í Flórída síðdegis í gær endaði með því að 56 ára gamall karlmaður hóf skothríð með skammbyssu á nefndarmennina. Honum tókst þó ekki að hitta neinn þeirra.

Síðan hófst skotbardagi milli mannsins og öryggisvarða skólans sem endaði með því að maðurinn framdi sjálfsmorð. Áður en maðurinn hóf skothríð sína á skólanefndina hafði hann málað stórt V með hring í kringum á vegg stofunnar sem fundurinn var haldinn í.

Eftir að hann dró upp byssuna reyndi ein af konunum í nefndinni að slá hana úr hhendi hans með handtösku sinni. Þá hóf hann skothríðina á nefndarmenn.

Á meðfylgjandi myndbandi má sjá aðdraganda skotárásarinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×