Innlent

Stefán Haukur hættir sem sendiherra

Stefán Haukur Jóhannesson hefur verið sendiherra í Brussel frá árinu 2005 en heldur nú heim á leið.
Stefán Haukur Jóhannesson hefur verið sendiherra í Brussel frá árinu 2005 en heldur nú heim á leið.
Utanríkisráðherra hefur tekið ákvörðun um breytingar á starfsstöðvum sendiherra í utanríkisþjónustunni. Stefán Haukur Jóhannesson, sem hefur verið sendiherra í Brussel frá árinu 2005, flyst heim til starfa í ráðuneytinu 15. janúar næstkomandi og heldur áfram að gegna starfi aðalsamningamanns Íslands í aðildarviðræðum við ESB.

Þórir Ibsen, sem verið hefur sendiherra í París frá árinu 2009, verður sendiherra Íslands í Brussel frá 15. janúar næstkomandi með fyrirvara um samþykki belgískra stjórnvalda.

Berglind Ásgeirsdóttir, sem verið hefur í leyfi frá embætti sendiherra í utanríkisþjónustunni frá árinu 2007, tekur við sem sendiherra Íslands í París.

Þá hefur utanríkisráðherra ákveðið að flytja Önnu Jóhannsdóttur og Högna S. Kristjánsson úr embættum skrifstofustjóra í utanríkisþjónustunni í embætti sendiherra frá og með 1. janúar 2011.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×