Innlent

Merkingar á Miklubraut

Framkvæmdir hafa staðið undanfarna daga. Mynd/rvk.is
Framkvæmdir hafa staðið undanfarna daga. Mynd/rvk.is
Á morgun laugardaginn verður unnið við merkingar á svonefndri strætórein á Miklubraut til vesturs undir Skeiðarvogsbrúnni en framkvæmdirnar hafa staðið undanfarna daga. Hafist verður handa klukkan 11 og áætlað er að vinnan taki um 4 til 5 klukkustundir.

„Ekki er líklegt að tafir verði á umferð vegna framkvæmdanna, en ökumenn eru beðnir um að sýna aðgát og virða 70 km hámarkshraða við framkvæmdasvæðið," segir í tilkynningu frá framkvæmda- og eignasviði Reykjavíkurborgar. Framkvæmdirnar eru samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og borgarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×