Erlent

Gáttaðir á hegðan hákarla

Óli Tynes skrifar

Sérfræðingar sem hafa verið til kallaðir hafa enga hugmynd um ástæðuna fyrir fimm hákarlaárásum á ferðamenn undan ströndum Sinai skaga í Egyptalandi undanfarna daga. Einn ferðamannanna lést og hinir eru mikið slasaðir, tveir þeirra misstu handlegg í hákarlskjaft.

Leitað hefur verið til sérfræðinga víða um heim útaf hegðan hakarlanna en þeir eru gáttaðir. Ýmsar getgátur hafa verið uppi. Svosem að hákarlar hafi fært sig nær ströndinni vegna ofveiða á Rauðahafi. Önnur er á þá leið að Ísraelar hafi þjálfað hákarlinn til árása til þess að skaða ferðaþjónustu í Egyptalandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×