Erlent

Wikileaks: Assange neitað um dvalarleyfi í Svíþjóð

Julian Assange.
Julian Assange.

Julian Assange, forsvarsmaður Wikileaks, fær ekki dvalarleyfi í Svíþjóð eins og hann hafði sótt um. Aftonbladet skýrir frá þessu í dag og hefur eftir útlendingaeftirlitinu þar í landi.

Assange sóttist eftir atvinnu- og dvalarleyfi í landinu en þar með gæti hann komið Wikileaks í örugga höfn þar sem í Svíþjóð er í gildi yfirgripsmikil löggjöf um vernd heimildarmanna.

Assange komst hins vegar í fréttirnar í Svíþjóð á dögunum þegar hann var kærður fyrir kynferðislega áreitni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×