Innlent

Þarf leyfi frá Geislavörnum

Guðbjartur Hannesson
Guðbjartur Hannesson
Settar verða reglur til að takmarka notkun öflugra leysibenda vegna vaxandi fjölda dæma um misnotkun.

Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra hefur boðað reglugerðarbreytingu sem gerir notkun öflugra leysigeisla leyfisskylda og innflutning þeirra tilkynningaskyldan.

Dæmi eru um að slíkum leysigeislum sé beint að flugstjórnar­klefum flugvéla og að bílstjórum við akstur. Alvarleg slys geta hlotist af slíkri misnotkun. - bj



Fleiri fréttir

Sjá meira


×