Erlent

Khodorkovsky fundinn sekur

Mikhail Khodorkovsky var í morgun fundinn sekur um fjárdrátt.
Mikhail Khodorkovsky var í morgun fundinn sekur um fjárdrátt. MYND/AP

Rússneski auðjöfurinn Mikhail Khodorkovsky var í morgun fundinn sekur um fjárdrátt af dómara í Moskvu. Khodorkovsky, sem eitt sinn var á meðal auðugustu manna heims, afplánar nú þegar átta ára fangelsisdóm fyrir fjársvik og skattaundanskot og nú gæti hann þurft að dúsa í fangelsi í sex ár til viðbótar.

Stuðningsmenn hanns hafa ávallt haldið því fram að ásakanir á hendur honum séu af pólitískum toga en hann féll í ónáð hjá Vladímír Pútín þáverandi forseta og núverandi forsætisráðherra þegar hann styrkti stjórnarandstöðu landsins fjárhagslega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×