Innlent

Alcoa styrkir hjálparstarf

Hjálparstarf kirkjunnar fékk í gær 50 þúsund dollara, eða 5,7 milljónir íslenskra króna, í styrk frá Samfélagssjóði Alcoa í Bandaríkjunum.

Sjóður Alcoa hefur styrkt Hjálparstarf kirkjunnar síðustu ár. Samkvæmt tilkynningu frá Alcoa verður styrknum varið til matar- og lyfjaaðstoðar, ráðgjafar og hjálpar vegna skólagöngu og tómstunda barna á Íslandi.

Starfsárið 2009 til 2010 tók hjálparstarfið við rúmlega fimm þúsund umsóknum frá einstaklingum og fjölskyldum. Tæplega tólf þúsund úthlutanir fóru fram. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×