Innlent

Hafa sjálfstraust til að meta hvað tókst vel og hvað miður

Jóhanna Harpa Árnadóttir starfar sem verkfræðingur í kerskála álversins á Grundartanga.
Fréttablaðið/GVA
Jóhanna Harpa Árnadóttir starfar sem verkfræðingur í kerskála álversins á Grundartanga. Fréttablaðið/GVA
Verkfræðingafélag Íslands vinnur að endurskoðun siðareglna sinna svo að þær endurspegli betur kröfur breyttra tíma til starfsins. „Eftir því sem verkefni verkfræðinga hafa orðið fjölbreyttari og þjóðfélagið flóknara hefur þörfin aukist fyrir einfaldar, almennar reglur sem gætu þjónað sem almennur siðlegur hornsteinn fyrir öll störf sem verkfræðingar takast á við í krafti menntunar sinnar,“ segir Jóhanna Harpa Árnadóttir, formaður Verkfræðingafélagsins. „Það hefur mikið breyst í vinnuumhverfi verkfræðinga, bæði með tölvuvæðingu og rafrænni upplýsingamiðlun. Eins má nefna uppgang og hrun bankakerfisins.“

„Verkfræðingar hafa gegnt veigamiklu hlutverki í uppbyggingu landsins og sam­félagsins og eru meðvitaðir um að stéttin eigi líka að taka þátt í þeim breytingum sem nú eiga sér stað,“ segir Jóhanna. Þannig taki stéttin hlutverk sitt alvarlega og sýni að hún ætli áfram að vera traustsins verð.

Gildandi siðareglur verkfræðinga eru að stofni frá 1955 en voru endurskoðaðar 1993. Sú endurskoðun, sem nú sér fyrir endann á og verður rædd á ráðstefnu félagsins á miðvikudag, hófst vorið 2008. Síðastliðið vor var slembiúrtak stéttarinnar kallað til fundar með þjóðfundarfyrirkomulagi þar sem siðareglur voru til umræðu.

Jóhanna segir að niðurstaðan sé sú að hverfa frá áherslu á ítarlegar reglur um samband verkkaupa og verksala og leggja þess í stað áherslu á fáar en gagnsæjar meginreglur þar sem fjallað er um virðingu og jafnrétti, faglega ábyrgð og ráðvendni og samfélagslega ábyrgð og sjálfbærni. „Verkfræðingar eru stétt sem hefur nógu mikið faglegt og siðferðilegt sjálfstraust til að meta hvað tókst vel og hvað tókst miður vel,“ segir Jóhanna Harpa Árnadóttir.

peturg@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×