Innlent

Skúli Tyson sýknaður í Hæstarétti

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Skúli Tyson var sýknaður í Hæstarétti í dag. Mynd/ HARI.
Skúli Tyson var sýknaður í Hæstarétti í dag. Mynd/ HARI.
Hæstiréttur Íslands sýknaði í dag Skúla Stein Vilbergsson, sem oft er kallaður Skúli Tyson, af ákæru um að hafa slegið kærustu sína með glasi í andlitið á veitingastaðnum Yello í Reykjanesbæ. Héraðsdómur Reykjaness hafði áður fundið Skúla sekan um brotið og dæmt hann í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Fyrir dómi neitaði Skúli ekki að hafa kasta glasinu í konuna. Hann neitaði hins vegar að hafa gert það með ásetningi. Hann hafi misst glasið þegar að kærastan sparkaði í klofið á honum. Héraðsdómur féllst ekki á málsvörn Skúla.

Hæstiréttur klofnaði í afstöðu sinni. Tveir dómarar, þeir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson, segja að ekki sé fyrirfram unnt að hafna því að ákærði kunni að hafa brugðist ósjálfrátt við sparki stúlkunnar með þeim hætti að slæma bjórglasinu, sem hann hélt í hendi sér, í andlit hennar. Þriðji dómarinn, Viðar Már Matthíasson, segir hins vegar að skýringar Skúla á því hvernig sú atburðarrás varð að stórt bjórglas, sem hann var með í höndunum, lenti með afli í andliti brotaþola og olli líkamstjóni séu fráleitar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×