Innlent

Blaða­manna­fundur Selenskíj og for­sætis­ráð­herra að hefjast

Kjartan Kjartansson og Vésteinn Örn Pétursson skrifa
Forsætisráðherrar Norðurlandanna ásamt Selenskíj á Þingvöllum í dag.
Forsætisráðherrar Norðurlandanna ásamt Selenskíj á Þingvöllum í dag. Vísir/Vilhelm

Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, er kominn til landsins. Hér mun hann funda með norrænum forsætisráðherrum á Þingvöllum og ávarpa Norðurlandaráðsþing. Mikill öryggisviðbúnaður er vegna heimsóknar Selenskíj og annarra erlendra ráðamanna.

Selenskíj kom til fundar við Bjarna Benediktsson forsætisráðherra á Þingvöllum um klukkan fjögur. Hann er nú haldinn til fundar með öðrum norrænum forsætisráðherrum á Þingvöllum. Blaðamannafundur ráðherranna og Selensíkj er að hefjast, en sjá má hann hér að neðan.

Hér að neðan má sjá þegar Selenskíj mætti til fundar við Bjarna. 

Bein textalýsing frá heimsókn Selenskíj er hér fyrir neðan. Birtist hún ekki er ráð að endurhlaða síðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×