Erlent

Börðust við að bjarga 300 manns úr blindbyl

Lögregla og hermenn hafa barist í gærkvöldi og nótt við að bjarga um 300 manns í Ontario í Kanada undan versta blindbyl sem skollið hefur á héraðið undanfarin 25 ár.

Fólkið sem hér um ræðir sat fast í bílum sínum á þjóðvegi 42 og höfðu sumir þeirra setið fastir í nær sólarhing þegar björgunarliðið náði til þeirra.

Sjónkoman var svo þung að bílanna hafði fennt í kaf svo ekki var hægt að opna hurðir þeirra. Björgunaraðgerðir standa enn yfir og ekki er reiknað með að þeim ljúki fyrr en seinna í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×