Innlent

Umferðaróhapp á Suðurlandsbraut

Umferðaróhapp varð á Suðurlandsbraut við Álfheima um klukkan átta í kvöld. Tveir bílar, sem komu úr gagnstæðri átt, skullu saman. Ökumenn bílanna slösuðust minniháttar, samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Annar ökumaðurinn fór sjálfur á slysadeild og hinn fluttur þangað til skoðunar.

Bílarnir eru mikið skemmdir en mikil hálka er á götunni. Lögregla biðlar til ökumanna að keyra varlega því mikil hálka sé á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×