Innlent

Myndir Ragnars á meðal þeirra bestu á árinu

Ljósmynd Ragnars Th Sigurðssonar hjá ARCTIC-IMAGES af eldgosinu í Eyjafjallajökli hefur verið valin af vísindatímaritinu Nature sem ein af bestu ljósmyndum ársins. Myndin sýnir ótrúleg umbrot í jöklinum og eldingar sem lýsa upp gosmökkinn. Önnur mynd af eldgosinu eftir Ragnar er einnig á meðal bestu mynda ársins að mati bandaríska tímaritsins Time.

Hér má sjá bestu myndir ársins að mati Nature.

Hér eru bestu myndirnar að mati Time.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×