Innlent

Eldur í íbúðarhúsi á Ísafirði

Mynd/Rósa

Eldur kviknaði í íbúð á annari hæð í tvílyftu gömlu timburhúsi við Aðalstræti á Ísafirði upp úr klukkan fimm í nótt.

Þegar slökkviliðið kom á vettvang hafði íbúum tekist að slökkva yfirborðseld með slökkvitæki, en slökkviliðsmenn þurftu að rjúfa vegg til að slökkva í glæðum.

Eitthvert tjón varð á efri hæð hússins, en engan íbúa sakaði. Fólkið vaknaði við reykskynjara. Lögreglan rannsakar nú eldsupptök.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×