Erlent

Áttburamamman á leið á götuna

Nadya Suleman, sem eignaðist áttbura fyrir tveimur árum og hlaut heimsfrægð fyrir, er í vandræðum. Hún skuldar 450 þúsund dollara í húsi sem hún flutti inn í eftir fæðinguna og fyrri eigandi ætlar að krefjast þess að hún verði borin út ásamt börnum sínum 14, en konan átti sex lítil börn áður en áttburarnir komu undir. Öll komu börnin í heiminn með aðstoð gerfifrjóvgunar.

Eigandinn hefur nú gefist upp á að fá restina borgaða og nú þarf Suleman að finna sér nýtt þak yfir höfuðið fyrir sig og sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×