Innlent

Svínaflensan tekur sig upp aftur hér á landi

Hafsteinn Hauksson skrifar

Svínaflensa greindist í ungum manni í gær og er fyrsta tilfellið í ár. Fregnir af svínaflensu bætast ofan á magakveisufaraldur sem geisað hefur undanfarið.

Engin tilfelli af inflúensu höfðu greinst síðan svínaflensan gekk yfir undir lok síðasta árs fyrr en í gær. Þá greindust tvö tilfelli, annars vegar svínaflensa í ungum manni og árstíðabundin inflúensa í eldri konu.

Haraldur Briem, sóttvarnalæknir, segir að þetta sé til marks um að flensan sé að taka sig upp að nýju.

„Já, tvímælalaust. Þetta tengist nágrannalöndum okkar, annað tilfellið hefur tengsl við Bretland þar sem svínainflúensa er að ganga núna og valda talsverðum usla. Það hefur verið eitthvað um dauðsföll þar og álag á gjörgæsludeildum, en almennt séð verða menn ekki mikið varir við inflúensufaraldurinn úti í samfélaginu," segir Haraldur.

Haraldur segist telja að svo stór hluti þjóðarinnar hafi ýmist verið bólusettur eða þegar fengið pestina að litlar líkur séu á að faraldurinn verði eins stór og í fyrra. Embætti Landlæknis hvetur þó fólk í áhættuhópum, og þá sem enn hafa ekki bólusett sig, til að láta af því verða, bæði fyrir svínaflensunni og árstíðabundnu flensunni.

Fregnir af svínaflensunni bætast ofan á nóróveirufaraldur, sem valdið hefur magakveisu með uppköstum og niðurgangi hjá fjölda Íslendinga undanfarið og Haraldur segir að sé bráðsmitandi.

„Hún smitast bæði með hósta og saurmengun, svo hún dreifir sér auðveldlega. En ég er nú að vona að þetta sé að ganga yfir, en þetta hefur verið mikið álag í samfélaginu."

Því skiptir handþvottur máli að sögn Haraldar, og að fólk gæti sín að hósta ekki nálægt öðrum og haldi sig heima ef það veikist til að hefta útbreiðslu sjúkdómanna.

En er fólk dæmt til að missa af jólamatnum ef það veikist af nóróveirunni um hátíðarnar?

„Einkennin segja til um það. Ef mönnum er farið að líða vel, þá geta þeir farið að borða eins og venjulega, hægt og rólega, og sjá hvað þeir þola."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×