Innlent

Sex innbrot í dag

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Mynd/ Pjetur.
Mynd/ Pjetur.
Það er ljóst að þjófar hafa látið greipar sópa á höfuðborgarsvæðinu í dag. Lögreglunni hafa borist tilkynningar um sex innbrot frá því klukkan sjö í kvöld.

Þar af eru tvö íbúðarhús í Hafnarfirði og tvö íbúðarhús í Kópavogi. Þá var brotist inn í verslunarhúsnæði í Spönginni í Grafarvogi og bíl á Ártúnshöfða. Enginn hefur verið handtekinn vegna þessara innbrota.

Lögreglumaður sem fréttastofa talaði við sagði líklegast að innbrotin í heimahúsin væru skýrð með þeim hætti að húsráðendur hefðu skroppið af bæ og þjófarnir látið greipar sópa á meðan. Það er því full ástæða fyrir fólk að hafa varan á yfir hátíðarnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×