Erlent

Breskir gæludýraeigendur eyða átján milljörðum í dýrin sín fyrir jólin

Breskir hunda- og kattaeigendur munu punga út 100 milljónum punda fyrir þessi jólin í gjafir handa dýrunum sínum. Ný könnun leiðir í ljó að sex af tíu gæludýraeigendum ætla sér að gefa þeim jólagjafir og eyða að meðaltali tæpum tólf pundum í gæludýranammi og leikföng.

Talið er að í Bretlandi séu um fjórtán og hálf milljón hunda og katta og miðað við það er heildarupphæðin tæp 100 milljón pund, sem gerir um 18 milljarða íslenskra króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×