Innlent

Brotist inn í Pedrómyndir

Mynd úr safni

Í nótt var brotist inn í verslunina Pedrómyndir sem stendur við Skipagötu á Akureyri. Farið var inn í verslunina með því að spenna upp hurð sem er á bakhlið hennar. Stolið var all nokkrum myndavélum og linsum og er talið að söluverðmæti þessara hluta geti numið um 4 til 5 milljónum króna.

Lögreglan óskar eftir því að ef einhver hafi orðið var við mannaferðir síðastliðna nótt við verslunina eða búi yfir einhverjum upplýsingum um málið hafi samband við lögregluna á Akureyri í síma 464-7705.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×