Innlent

Allt að 122% verðmunur á hamborgarhrygg

32% verðmunur var á dýrasta taðreykta hangikjötinu, hjá Nettó, og því ódýrasta, hjá Fjarðarkaupum, samkvæmt könnun verðlagseftirlits ASÍ
32% verðmunur var á dýrasta taðreykta hangikjötinu, hjá Nettó, og því ódýrasta, hjá Fjarðarkaupum, samkvæmt könnun verðlagseftirlits ASÍ
Allt að 122% verðmunur var á hamborgarhrygg með beini þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í 7 lágvöruverðsverslunum og stórmörkuðum í Reykjavík og Akureyri á mánudag. Kannað var verð á 46 algengum matvörum sem eru til í eldhúsum landsmanna yfir hátíðarnar.

Bónus var oftast með lægsta verðið í 27 tilvikum af 46 en í 15 tilfellum var um eða undir 2 krónu verðmunur á Bónus og Krónunni. Nóatún var með hæsta verðið í 19 tilvikum, en Samkaup-Úrval var næst oftast með hæsta verðið í 15 tilvikum.



KEA Hamborgarhryggur ódýrastur í Nettó Akureyri


Mikill verðmunur reyndist á hangikjöti og hamborgarhrygg, en verðmunurinn var 32-122%.

Mesti verðmunurinn var á KEA Hamborgarhrygg með beini sem var á lægsta verðinu hjá Nettó Akureyri á 989 kr./kg. en dýrastur hjá Nóatúni og Samkaupum-Úrval á 2.198 kr./kg. sem er 122% verðmunur eða 1.209 kr.

Minnstur verðmunur var á taðreyktu hangikjöti frá Kjarnafæði sem var á lægsta verðinu hjá Fjarðarkaupum á 2.428 kr./kg. en dýrast hjá Nettó á 3.195 kr./kg. sem er 32% verðmunur eða 770 kr./kg. Einnig má benda á að það var 54% verðmunur á hæsta og lægsta verði á SS birkireyktu hangikjöti.

Athygli vakti að enginn verðmunur reyndist vera á jólapaté með rifsberjahlaupi frá Alí og Hreindýrapaté frá Viðbót, í þeim verslunum sem varan var fáanleg.

Mikill verðmunur á ávöxtum milli verslana

Mikill verðmunur á grænmeti og ávöxtum milli verslanna vakti einnig athygli. Sem dæmi má nefna að ódýrustu fáanlegu appelsínurnar kostuðu 168 kr./kg. í Fjarðarkaupum en 339 kr./kg. hjá Hagkaupum sem er 102% verðmunur.

Forsoðnar skyndikartöflur frá Þykkvabæ voru ódýrastar á 395 kr./kg. hjá Bónus en dýrastar á 545 kr./kg. hjá Fjarðarkaupum sem er 38% verðmunur eða 150 kr./kg.

Af öðrum vörum má nefna að lægsta verð á Lindu konfektkassa 460gr. var 998 kr. í Bónus en það var dýrast í Fjarðarkaupum á 1.498 kr. sem er 50% verðmunur.

Ódýrasta kílóverðið af Machintoch Quality Street var 1.299 kr./kg. hjá Bónus en það var dýrast hjá Nóatúni á 1.990 kr./kg. sem er 53% verðmunur eða 691 kr./kg.

Lítill munur á Nóa konfekti

Aðeins var 3-9% verðmunur á Nóa konfektinu á milli verslana en lægsta verðið var hjá Bónus en hæsta hjá Nóatúni og Samkaupum-Úrval.

ASÍ tekur fram í tilkynningu að verslunin Kostur í Kópavogi neitaði þátttöku í könnuninni

Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum: Bónus Holtagörðum, Krónunni Granda, Nettó Akureyri, Fjarðarkaupum Hafnarfirði, Samkaupum Úrval Hafnarfirði, Hagkaup Skeifunni og Nóatúni í Nóatúni. Verslunin Kostur í Kópavogi neitaði þátttöku í könnuninni.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×