Innlent

Aftansöngur í beinni á Stöð 2 og Vísi

Stöð 2 og Vísir verða með beina útsendingu frá aftansöng í Grafarvogskirkju.
Stöð 2 og Vísir verða með beina útsendingu frá aftansöng í Grafarvogskirkju.
Búist er við því að tugþúsundir manna sæki helgihald yfir jólahátíðina. Á milli sex og sjö hundruð helgistundir verða á vegum þjóðkirkjunnar um allt land um jól og áramót, auk þess sem messur verða á sjúkrahúsum, dvalarheimilum og víðar.

Í mörgum kirkjum er aftansöngur klukkan sex og svo miðnæturmessa í kvöld. Upplýsingar um messur má finna á heimasíðum sóknanna og kirkjan.is. Stöð 2 og Vísir sýna beint frá aftansöng í Grafarvogskirkju og hefst útsendingin klukkan sex.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×