Erlent

Bað lögreglu að fjarlægja eiginkonuna meðan á leiknum stóð

Maður í Kaupmannahöfn hringdi í neyðarlínu lögreglunnar meðan á úrslitaleiknum milli Dana og Frakka stóð í heimsmeistarakeppninni í handbolta.

Vildi maðurinn að lögreglan fjarlægði eiginkonu sína úr íbúð þeirra. Til handalögmála hafði komið þeirra í millum þar sem konan krafðist þess að maðurinn eldaði kvöldmatinn en hann vildi heldur horfa á leikinn.

Samkvæmt frásögn Ekstra Bladet af þessu máli húðskammaði lögreglan manninn fyrir að misnota neyðarlínuna og sagði honum að þau hjónin þyrftu að leysa þetta mál á eigin spýtur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×