Erlent

The King´s Speech heldur áfram að safna verðlaunum

Breska kvikmyndin Málhalti konungurinn eða The King´s Speech heldur áfram að sanka að sér verðlaunum.

Samtök leikara í Bandaríkjunum kusu hana bestu mynd síðasta árs í gærkvöldi. Fyrr um helgina höfðu Samtök leikstjóra í Bandaríkjunum einnig kosið hana bestu myndina.

Myndin fjallar um hvernig George sjötti Bretakonungur losaði sig við það að stama. Myndin er tilnefnd til 12 óskarsverðlauna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×