Körfubolti

Marcus og Mamma: Klárum dæmið í næsta leik

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Það sem hefur alltaf skilað okkur sigrum er varnarleikur okkar í síðari hálfleik. Um leið og liðið nær að stoppa 2-3 sóknir frá andstæðingnum þá smitað þar frá sér og við eflumst," sagði Walker.

Marcus Walker lék í fyrsta sinn fyrir framan móðir sína, sem var á áhorfendapöllunum í kvöld, síðan hann kom til KR en hún er um þessar mundir á landinu og ætlar ekki að yfirgefa Ísland fyrir en titilinn er í höfn.

„Það var frábært að horfa á hann, en ég var virkilega stressuð í fyrri hálfleik," sagði Shayla Walker, móðir Marcus Walker, stolt af syni sínum.

„Þetta er í fyrsta skiptið sem ég fer úr heimalandi mínu og ég ætla að vera hér þangað til að KR klárar titilinn," sagði".


Tengdar fréttir

Teitur: Þetta var bara búið í hálfleik

"Við spiluðum vel í fyrri hálfleik, en áttum aldrei séns í þeim síðari,“ sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir ósigurinn í kvöld.

Umfjöllun: KR átti í engum vandræðum með Stjörnuna

KR-ingar settust í bílstjórasætið í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í kvöld þegar þeir unnu Stjörnuna, 101- 81, í þriðja leik liðanna og leiða því einvígið 2-1. KR keyrði yfir Stjörnuna í þriðja leikhlutanum og voru tuttugu stigum yfir þegar einn leikhluti var eftir. Marcus Walker átti enn einn stórleikinn og skoraði 33 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×