Erlent

Segir Kate já? - brúðkaupið í beinni á Vísi

Brúðhjónin að athöfn lokinni. Mynd/AFP
Brúðhjónin að athöfn lokinni. Mynd/AFP
Brúðkaup Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton fer fram í Westminster Abbey í London í dag. Gríðarlegur mannfjöldi er samankominn í borginni til þess að berja kóngafólkið augum enda ekki á hverjum degi sem verðandi krónprins Breta gengur í hnapphelduna.

Útsendingin hefst klukkan sjö en sjálf athöfnin klukkan tíu. Hægt er að fylgjast með herlegheitunum í beinni útsendingu á Vísi og á Stöð 2 í opinni dagskrá fram til klukkan 12.30.



Hildur Helga Sigurðardóttir mun lýsa því sem fyrir augu ber.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×