Lífið

Gusgus undirbýr sprengju - eitt skemmtilegasta kvöld sumarsins

Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að ein ástsælasta hljómsveit landsins, Gusgus, gaf út nýja plötu í byrjun vikunnar. Platan, Arabian Horse, er strax farin að vekja mikla athygli og fá toppdóma hér heima og út um allan heim.

Landsmenn fengu forsmekkinn að plötunni í sjónvarpsútsendingu frá opnun Hörpunnar þar sem sveitin tók lögin Over og Within You við mikinn fögnuð viðstaddra eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir ofan.

Þarna er hin nýja Gusgus frumsýnd. Með söngvarana Daníel Ágúst, Urði Hákonardóttur og Högna í Hjaltalín í forgrunni og skipstjóra sveitarinnar, þá Stebba Steph og Bigga Veiru, fyrir aftan.

Þessi magnaða uppröðun verður á sviðinu á Nasa laugardaginn 18. júní þegar Gusgus blæs til útgáfuveislu Arabian Horse. Gusgus er þekkt fyrir ótrúlega kraftmikla tónleika, ekki síst á Nasa, og lofa þeir að setja vélarnar á fulla ferð.

Íslenskur aðdáendahópur sveitarinnar fer sístækkandi og mun án efa ná nýjum hæðum eftir því sem fleiri komast í tæri við Arabian Horse. Miðarnir á tónleikana munu því eflaust renna út en þeir fara í forsölu á midi.is á klukkan 10 mánudaginn.

Lífið á Vísi er í samstarfi við Gusgus um útgáfutónleikana á Nasa. Aðdáendur Gusgus sem komast ekki á tónleikana komast því í feitt vegna þess að þessir tímamótatónleikar verða í beinni útsendingu hér á Vísi.

Við ætlum einnig að fylgjast rækilega með undirbúningi þeirra og vera á svæðinu um kvöldið þegar allt gengur af göflunum á útgáfutónleikunum. Enda stefnir allt í að þetta verði eitt skemmtilegasta kvöld sumarsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.