Innlent

Lýst eftir Eggerti Davíð

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Eggerti Davíð Jóhannssyni, 16 ára. Talið er að hann sé klæddur í ljósbrúnan jakka, rauðar buxur,  í svörtum  bómullarbol og  í hvítum strigaskóm.  Hann er með derhúfu á höfði.  Eggert  er grannvaxinn og um 177 sm á hæð, með blá augu og stutt, litað ljóst hár. Síðast er vitað um ferðir hans í Hamraborg í Kópavogi  um miðjan dag s.l. mánudag. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Eggerts eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×