Innlent

Áreittu 15 ára gamla stúlku á tjaldsvæði

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Brotið átti sér stað á tjaldsvæði.
Brotið átti sér stað á tjaldsvæði.
Tveir 26 ára gamlir karlmenn voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmdir í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðislega áreitni gegn fimmtán ára gamalli stúlku. Atvikið átti sér stað á tjaldstæði á Flúðum.

Mennirnir voru fundnir sekir um að hafa farið inn í tjald stelpunnar, þar sem hún lá sofandi ásamt vini sínum. Annar þeirra reynt að kyssa stelpuna og káfað á brjóstum hennar en hinn káfað á lærum hennar við kynfæri.

Mennirnir neituðu sök, en voru sakfelldir á grundvelli frásagnar stúlkunnar sem var studd með vitnisburði vinar hennar, sem staddur var í tjaldinu, og manns sem var staddur í nærliggjandi tjaldi og heyrði það sem fram fór.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×