Innlent

Ungmenni í hrakningum á Meðalfellsvatni

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. MYND/Vilhelm
Fjórum ungmennum var bjargað, blautum, köldum og hröktum, af hólma í Meðalfellsvatni, eftir að bát þeirra hvolfdi upp úr miðnætti og þau lentu í vatninu.

Þau náðu að hringja á hjálp og fóru björgunarsveitarmenn og menn úr slökkviliði höfuðborgarsvæðisins á vettvang og björguðu þeim upp í slöngubát, sem flutti þau í land þar sem sjúkrabílar biðu þeirra og fluttu á slysadeild til aðhlynningar.

Engum varð meint af volkinu og fengu þau að fara heim að aðhlynningu lokinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×